top of page

Mrs. Larsen's academy of the arts

🇳🇴 Noregur

Lengd:

14:00

Um myndina

Það er útskriftarsýning í listaskóla frú Larsen. Frú Larsen sér um að velja úr listaverkum barnanna og selja þau foreldrum þeirra.


Sigrun (16), nemandi á lokaári í einkareknum listaskóla, er ósátt við listræna sýn frú Larsen og hefur ákveðið að sýna henni hvernig alvöru list lítur út.


Í mjög sérstökum og umfangsmiklum listrænum gjörningi grefur Sigrún undan sjálfum grunni skólans. Mun gjörningur hennar breyta hugmyndum frú Larsen um hvað list er?

Leikstjóri

Jon Tengs Engebretsen

Um leikstjórann

Jon Tengs Engebretsen er menntaður í íþróttafræðum og hefur allan sinn starfsferil starfað við sjónvarp, kvikmyndir og leikhús. Hann hóf feril sinn sem skylmingakennari fyrir leiklistarnema við Listaháskólann í Ósló árið 1997.


Hann kennir nú kvikmyndanemum við Kristiania University College. Verk hans snúast um einföldun. Markmið hans er að finna áhugaverð viðfangsefni, einfalda þau og reyna með táknmáli og fáránleikakenndri nálgun að draga fram kjarna þeirra

© 2026 by Kids for Films / Kvikmyndahátíð barnanna

bottom of page