Um okkur

Börn, kvikmyndir og nýjar hugmyndir
Kvikmyndahátíð barnanna er kvikmyndahátíð fyrir börn, skipulögð af börnum í Árborg. Hér fá börn og ungmenni tækifæri til að uppgötva nýjar sögur, sjá stuttmyndir frá ólíkum löndum og taka þátt í að móta sína eigin kvikmyndahátíð.


Stofnandi
Kvikmyndahátíð barnanna var stofnuð af Söndru Steinþórsdóttur, sem hefur starfað við íslenskan kvikmyndaiðnað frá árinu 2009. Hún útskrifaðist með diplómu í handritaskrifum og leikstjórn frá Kvikmyndaskóla Íslands og hefur komið að fjölbreyttum kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum á íslandi og erlendis.
Sandra býr á Selfossi og hefur mikinn áhuga á kvikmyndum, sköpun og miðlalæsi barna. Með hátíðinni langaði hana að skapa vettvang þar sem börn fá að kynnast fjölbreyttum kvikmyndum og taka virkan þátt í kvikmyndamenningu.
Hugmyndin á bak við hátíðina
Kvikmyndahátíð barnanna varð til með það að markmiði að gefa börnum stærra hlutverk í kvikmyndamenningu. Við viljum skapa vettvang þar sem börn fá að uppgötva nýjar sögur, deila hugmyndum og upplifa kvikmyndir saman.
Vettvangur fyrir samræðu, sköpun og nýjar hugmyndir. Við viljum hvetja börn til að horfa, hugsa, spyrja og deila.
Samstarfsaðilar og stuðningsaðilar
Kvikmyndahátíð barnanna / Kids for Films er haldin í samstarfi við Cinema ehf., rekstraraðila Bíóhússins á Selfossi, sem hefur tekið vel á móti hátíðinni og mun sjá um sýningar á myndunum. Bíóhúsið býr yfir áratuga reynslu af kvikmyndasýningum og leggur sitt af mörkum til að skapa sem bestar aðstæður fyrir hátíðina. Við hlökkum til að sjá myndirnar sem unga kvikmyndaráðið í Árborg hefur valið fyrir hvíta tjaldið í Bíóhúsinu.
Verkefnið er stutt með styrkjum frá SASS (Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi), Kvikmyndamiðstöð Íslands og Sveitarfélaginu Árborg.
Hafa samband
Ef þú vilt hafa samband við okkur, styðja við hátíðina eða fá frekari upplýsingar, endilega hafðu samband.
sandra.steinthorsdottir@gmail.com
+354 849 6070
