top of page

FOOOLS

🇨🇦🇺🇸 Kanada, Bandaríkin

Lengd:

8:24

Um myndina

Í fjarlægu landi þar sem einungis er talað óþýðanlegt sirkusmál gera sætu trúðarnir Ham og Eex áætlun til að hugga litlu Nod þegar ástkærar eldflugur hennar hverfa.

Leikstjóri

Seo Kim, Steve Manale

Um leikstjórann

Seo Kim er fjölhæfur listamaður og teiknari með aðsetur í Los Angeles. Hún er þekkt fyrir sérkennilegar og vandaðar teikningar og myndasögur, auk vinnu sinnar við vinsælar teiknimyndaseríur á borð við Adventure Time, Summer Camp Island og Over the Garden Wall.


Steve Manale teiknar söguborð, andlitsmyndir og myndasögur. Hann hefur unnið fyrir alþjóðlega viðskiptavini á borð við Warner Bros., Lucasfilm, NBA og Coca-Cola. Í Kanada er hann þekktur fyrir störf sín við barnatímaritin OWL og Chickadee.


Steve býr og starfar í Toronto.

© 2026 by Kids for Films / Kvikmyndahátíð barnanna

bottom of page