top of page

Fall Christmas

🇬🇷 Grikkland

Lengd:

20:00

Um myndina

Fimm ára drengurinn Petros dvelur um haustið á barnakrabbameinsdeild og ákveður að færa jólin aðeins fyrr, vegna systur sinnar sem gæti vegna veikinda sinna ekki fengið að upplifa þau.

Leikstjóri

Kostas Bakouris

Um leikstjórann

Kostas Bakouris er leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi. Hann fæddist í Marousi og ólst upp í Piraeus í Grikklandi. Hann lærði leikstjórn fyrir kvikmyndir og sjónvarp við State University of New York og félagsfræði við Panteion-háskóla í Aþenu og er með meistaragráðu í sálfræði og fjölmiðlafræði.


Hann hóf feril sinn við leikstjórn tónlistarmyndbanda áður en hann færði sig yfir í sjónvarp, þar sem hann hefur meðal annars leikstýrt þáttum fyrir SKAI og heimildarmyndum fyrir ERT. Stuttmyndir hans Heimlich og IS, or: A beautiful, tiny reddish hair, as thin as fiber hafa verið valdar á 85 kvikmyndahátíðir og hlotið yfir 40 verðlaun og viðurkenningar. Fall Christmas er þriðja stuttmynd hans og er grísk-frönsk-belgísk samframleiðsla.

© 2026 by Kids for Films / Kvikmyndahátíð barnanna

bottom of page